Myndir tínast nú óðum inn á myndasafnið. Sömuleiðis fjölgar textum í Carminu 2008. Fylgist með og bætið við. Ritstjórnin er hér neðst á þessari síðu.
apríl 16th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | Ein ummæli »
Myndir tínast nú óðum inn á myndasafnið. Sömuleiðis fjölgar textum í Carminu 2008. Fylgist með og bætið við. Ritstjórnin er hér neðst á þessari síðu.
apríl 6th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | 2 ummæli »
Hraunsvatnsganga
Gengið verður að Hraunsvatni í Öxnadal, þægileg ganga í fögru og sögulegu umhverfi. Göngufólk safnast saman sunnan við Heimavist MA og sameinast í einkabíla. Brottför þaðan kl. 10 árdegis. Komið við í Hrauni þar sem við hittum leiðsögumanninn Bjarna E. Guðleifsson, náttúrufræðing og göngumann m.m. og skoðum Jónasarsafnið. Síðan verður kippt inn að Hálsi og þaðan lagt af stað upp að vatninu um kl. 11.30. Ekki er gert ráð fyrir að veiða sér til matar né grilla en það mætti þó gera. Öruggara að taka með sér dálítið nesti, samloku og kókómjólk. Niðurleiðin verður enn hægari enda undan brekkunni. Komið aftur niður að Hálsi um kl. 14.30. Þar er veitingahúsið Halastjarnan yfir Hálsi og þaðan er rúmt steinsnar yfir að Engimýri þar sem hægt er að kaupa sér kaffi. Annar kostur er að aka starx til Akureyrar. Sjá kynningu.
Menningarganga á Akureyri
um gamla bæinn. Lagt af stað kl. 5 síðdegis frá bílastæðinu við Drottningarbraut, neðan við Samkomuhúsið og rölt í allt að tvo tíma með leiðsögn sagnfræðinganna Jóns Hjaltasonar söguritara Akureyrar og Björns Vigfússonar menntaskólakennara. Síðan gert ráð fyrir heimsóknum í kaffi- og/eða veitingahús fyrir þau sem það kjósa. Kvöldið annars óskipulagt.
Heim að Hólum.
Rútuferð frá Heimavist MA kl. 10 fyrir þau okkar sem verða á Akureyri. Komið heim að Hólum í Hjaltadal kl. 12 og þá er æskilegt að þau séu komin þangað, sem eru að koma að sunnan og vestan. Léttur hádegisverður á Hólum kostar 1.000 kr. og er æskilegt að sem flestir greiði með þar til gerðum peningaseðlum fremur en kortum til að flýta fyrir afgreiðslunni. Síðan skoðunarferð um staðinn með herra Jóni Aðalsteini Hólabiskupi. Brottför frá Hólum kl. 15.
Bekkjarkvöld
Klukkan 20 hefst Samkvæmi í Lóni, sal Karlakórs Akureyrar-Geysis, í Hrísalundi 1a. Pottréttir og smáréttir. Karlakórsbarinn verður opinn. Sýndar myndir, kyrrar og kvikar. Söngur. Skarpó og Skúli leika á nikkur. Væntanlega einnig önnur dansmúsík, bítl og þess háttar.
Körfuknattleikskeppni
milli 40 ára stúdenta og Kennarastofu MA að morgni dags.
Heimsókn í MA
og spjall við skólameistara klukkan 13. Söngsalur. Skoðunarferðir um gamlar og kunnar slóðir í MA svo og um ný skólahús: Hóla, Bókasafnið og nýja heimavist. Heimsókn verði lokið um klukkan 15.
MA-hátíðin
hefst í Íþróttahöllinni kl. 18 með fordrykk. Við verðum með okkar eigin for-fordrykk í Oddfellowhúsinu við Þórunnarstræti, gegnt Lögreglustöðinni. Byrjum þar kl. 16.30. Þaðan verða rútuferðir í Höllina fyrir þá sem vilja ekki skokka. Þar verður margvísleg dagskrá með framlagi frá okkur þar sem við syngjum „Du, du liegst mir im Herzen“, „Burtu með sút“ og fleira gott.
Skólaslit í Íþróttahöllinni
klukkan 10 og standa til 12 eða svo. Tekin verða frá sæti og sérstaklega merkt okkur. Þar verður einn úr okkar hópi kallaður til að flytja ávarp og færa skólanum kveðjur okkar og mynd af Friðriki Þorvaldssyni.
Opið hús.
Tekið verður á móti gestum í húsum skólans síðdegis þennan dag með kaffisopa og smákökum en við gerum ekki ráð fyrir skipulagðri heimsókn okkar þangað heldur óskipulögðum heimferðum af okkar hálfu.
febrúar 11th, 2008 svpall Flokkur: Á döfinni | 6 ummæli »
Ritstjórar bekkjanna eru sem hér segir:
Gréta Ásgeirsdóttir fyrir MA
Stefán Ásgrímsson fyrir MB
Andrea Jóhannsdóttir fyrir MC
Alda Möller fyrir SA
Björn Stefánsson fyrir SB
Hlutverk þeirra er öðrum þræði að safna saman upplýsingum um bekkjarfélagana og hins vegar að skjóta þeim inn á vefinn og myndum með.
Myndaritstjóri er Konráð Erlendsson
Carminustjóri er Gunnar Frímannsson