Þann 20. maí klukkan fimm var hús tekið á Blárri könnu þar sem sýslumannshjónin önnuðust barnagæslu. Auk þeirra voru á fundi Gunnar Frímannson, Konráð og Gréta, Guðmundur Víðir, Jón Jóhannesar, Stebbi Vill á leið til Finnlands og svp.
Sverrir Páll lagði fram plagg, tvo þúsundkrónaseðla, sem Steingrímur Gunnarsson hafði komið með frá Ítalíu og lagt á borð skólameistara trúr sinni köllun að fornu og nýju um milliliðalaus viðskipti. Svp bar fundinum ljúfar kveðjur Steingríms, sem verður fjarri okkur á hátíðinni. Svp steingleymdi hins vegar að geta þess að Palli ljósmyndari er langt kominn að pússa linsurnar á myndavélinni sinni og mun taka hópmynd þegar við förum að skoða skólann 16. júní um eittleytið.
Greint var frá samskiptum við Kristin G. Jóhannsson listmálara og samningum um innrömmun og afhendingu málverksins af Friðrik Þorvaldssyni. Það er allt klárt og frágengið og með innrömmun og tilheyrandi verður hlutur hvers og eins 2.100 krónur.
Fram voru lagðar hugmyndir að matarveitingum í Lóni að kvöldi 15. júní. Ákveðið var að velja mat sem ólíkastan þeim sem yrði í Höllinni kvöldið eftir og verður því boðið upp á nautakjöts- og kjúklingapottrétti með brauði, hrísgrjónum, salati og tilbehöri. Fleiri kostnaðarliðir heyra undir liðinn Lón, meðal annars píanóleikur, leiga á húsnæði, þjónusta á staðnum o.s.frv. og áætlaður kostnaður á mann er 2.900 krónur. Drykkir – ef einhverjir vilja – verða seldir á vegum húsráðenda.
Vegna rútuferðar að Hólum í Hjaltadal fellur á förunautana rútukostnaður, 2.500 krónur. Haft var samband við Hólabiskup um að hann undirbúi Hólamenn þannig að við getum að lyst keypt okkur léttan hádegisverð. Búast má við að þröng verði á þingi, en biskup gat þess að klukkan tvö yrðu ástralskir djasstónleikar í dómkirkjunni.
Ljóst er orðið að fengið er leyfi til að fjölfalda kvikmyndina sem við lékum í forðum. Egill Eðvarðsson mun sjá um það. Pantaðir hafa verið 70-80 diskar og verðið er 2.000 krónur stykkið.
Mikið var rætt um liðinn Bollu hjá Eddu Jóh. Óar flestum sú hugsun að 135 manns komist með góðu móti fyrir í húsi og garði Eddu og þaðan á skammri stundu suður fyrir á og allt upp á Brekku. Rætt var um veður og vinda, búast mætti jafnvel við sumarhreti og ef til vill þyrfti að kaupa 135 pör af mannbroddum til að komast hjá beinbrotum og jafnvel taka sem fyrst til við að sporðrenna töflum úr ostruskeljakalki til að forðast beinþynningu. Komu nokkrar vöf(f)lur á suma nefndarmenn af þessum sökum. (Reyndar kom í ljós eftir fundinn að okkur stendur til boða rúta fyrir 13.500 kr til að flytja okkur í og úr Bollu, hvar sem hún verður. Áætlun gerir ráð fyrir þessum kostnaði).
Því miður var Edda ekki á staðnum og því engar ákvarðanir teknar en viðraðar allmargar hugmyndir um sali eða aðstöðu nær Íþróttahöllinni þar sem væri hægt að safnast saman til þess að lyfta glasi. Þá var bent á annmarka þess að hræra saman bollu fyrir á annað hundrað manna og talið æskilegra að bjóða upp á glas af léttvíni, öli og/eða óáfengum drykk. Kostnaður við þetta er einhver og við ákváðum að gera ráð fyrir 500 krónum á mann.
Þátttaka í Innbæjargöngu er mjög mikil og miklu meiri en svo að hægt sé að fara um í einum hópi. Jón Hjaltason sagnfræðingur og söguritari Akureyrar hefur tekið að sér að hafa leiðsögn og Björn Vigfússon sagnfræðingur og sögukennari við MA hefur lofað að fara fyrir hinum hópnum.
Um gönguna að Hraunsvatni var rætt að rétt væri að hvetja fólk til að taka með sér nesti til ferðarinnar, vatnsflösku og kaffibrúsa og samloku, eftir því sem fólk vill. Það er einfalt mál að skella svolitlum pokaskjatta á bakið og hafa það með sér á leiðinni.
Fjallað var um skemmtiatriði í Höllinni 16. júní. Ekki hefur nefndin rætt við Valgerði Jónu forsöngkonu um það mál nýlega. Við höfum á að skipa píanóleikara, Sigurði Helga Oddssyni, sem getur vel spilað hvað sem er. Vel. Beðið hefur verið um að við veljum nokkur sönglög í söngtextahefti kvöldsins 16. júní og það var gert snöggvast.
Við þurfum að útbúa sönghefti handa sjálfum okkur til að nota í Lóni. Tillögum um texta í söngheftið má skila til Gunnars (gunnarf@akureyri.is).
Svo fóru menn að tínast í burtu og fundurinn slitnaði sjálfur. Þó var ákveðið að hittast aftur um mánaðamótin.
Nú hefur þátttakendaskráin okkar (http://ma68.net/?page_id=681) verið aukin þannig að þar er kominn nýr dálkur með þeirri upphæð sem hver og einn á að greiða í söfnunarsjóð ma68. Reikningurinn er í banka nr. 302, höfuðbók 13 og reikningsnúmerið er 701190. Kennitala reikningseiganda er 210247-3869 og skráð nafn reikningseiganda MA68/Björn Jósef. Ef þátttaka ykkar er ekki rétt skráð og upphæðin fyrir vikið ekki rétt þá biðjum við ykkur að láta okkur vita strax um breytingar. Við biðjum ykkur að greiða endilega ekki síðar en miðvikudaginn 4. júní, m.a. til þess að við þurfum ekki að vera fram á síðasta dag að stússa í fjármálum. Þann dag ætlum við að fara í sturtu.
Nemdin ![]()