Gestabók

7 færslur í gestabókinni

  1. Stefán Ásgrímsson:

    Skemmtilegt að fletta í MA68 vefnum.
    Gleðilega menningarvöku um helgina.

  2. Afréttari

    Sælt veri fólkið.
    Nú styttist í 41 árs afmælið okkar. Þá njótum við nokkur þeirra forréttinda af fá “afréttara” eftir stórhátíðina í fyrra. Hér á ég auðvitað við þau sem eiga maka í MA69-hópnum. Þori ekki að telja okkur upp, ég væri vís til að gleyma einhverjum!! En ég hlakka til, þetta er fínasta dagskrá hjá Helgu minni og félögum.
    Góða þjóðhátíð!
    Stebbi Vill

  3. Fínar myndir, Stefán, góð viðbót við það sem þarna var. Vildi að ég væri svona virkur :)

  4. Takk fyrir skemmtilega endurfundi í vor. Setti fáeinar myndir í myndasafnið. Þær er að finna í albúmi sem heitir Akureyri 2008.

    Með bestu kveðjum

    -SÁ

  5. Kærar þakkir fyrir samveruna öllusömul. Þetta var allt saman frábært og norðanmenn eiga allan heiður skilinn fyrir framkvæmdina. Í huga minum standa nokkrir atburðir þó upp úr. Fyrst var það Hraunsvatnsgangan sakir veðurblíðu, spjalls, ljóðalesturs og ævintýra sérsveitarinnar. Síðan var það ferðin að Hólum, vegna þess hve vel okkar ágætu Jón og Margrét tóku á móti okkur og staðurinn birtist sem í nýju ljósi. Loks voru það skólaslitin sem mér fundust virðuleg en afslöppuð athöfn, flottar ræður (Stebbi bestur) og meistari sem þekkti nemendur, en hápunkturinn þar þó söngur Guðrúnar Tómasdóttur, 60 ára stúdents. Við stúlkurnar úr SA náðum saman eftir 40 ára aðskilnað sem var frábært. Til athugunar næst eftir 5 ár er etv. að gera ráð fyrir meira spjalli í rólegheitum eða á göngu – en þess saknaði ég helst í glaumnum og sitjandi borðhaldi.
    Með sumarkveðju
    Alda

  6. Þetta er gestabók, sem Guðjón hefur sett hérna inn. Ég er að prófa hvernig hún virkar. Mér skilst að hér sé ekki birt havðs em er því svona bækur fyllast oft af rusli. Sjáum til. Þetta er þá ekki verra en svo að við ritstjórarnir samþykkjum birtingu eða höfnum.

  7. Til hamingju með afmælið júbílantar. Takk kærlega fyrir þetta fína rauðvín. Þess verður notið við gott tækifæri.

    Það var sérstaklega gaman að sjá ykkur gera Friðriki séntilmenni svo hátt undir höfði. Hann kenndi mér margt og aðstoðaði mig á ýmsa lund eftir útskrift úr VMA á sínum tíma.

    Bestu kveðjur til ykkar allra.

    Guðjón