Sjetti fundur undirbúningsnefndar
Settur á Bláu könnunni fimmtudaginn 5. júní klukkan hálfníu eftir að fundarboðandi hafði ásamt tveimur öðrum beðið í hálftíma af því að hann mundi ekki hvenær hann hafði sagt að fundurinn ætti að byrja og hafði ekki fengið neinn tölvupóst þarum eins og hinir. Mætt voru: Edda Jóhanns, Gunnar Frí, Gunnar Gísl, Jóhanna, Stefán Vill og svp. Konni og Gréta boðuðu forföll vegna afmælishátíðar þangað sem börnin hafa boðað komu sína. Af því tilefni orti Stefán og sendi á nefndina:
Hjónin eiga afmæli,
að ýmsu þarf að gæta,
þar er allt í uppnámi
því afkomendur mæta!
Ómar Torfason bætti við að bragði:
Hjónakornin stinn og stolt
standa í miklu brasi,
koma börn um hæð og holt
með höfuð upp úr grasi.
Þetta varð tilefni umræðna um hve gaman og algengt það er að fólk úr okkar hópi kemur út úr skápnum á gamalsaldri og yrkir eins og það hafi aldrei gert annað. Og enn kvað Stefán:
Braga gull er fundið fé
sem fornu skáldin gleður.
Út úr skápnum Ómar sté,
ólmur síðan kveður.
Og Ommi svaraði að bragði:
Glampa slær af geislabaugnum
gleðin skín úr öllum hornum,
úr skápnum laus á skáldahaugnum
skálda ég með hetjum fornum.
En aftur til fundarins. Fyrst var fjallað um skemmtiatriði 40 ára stúdenta að kvöldi 16. júní í Höllinni. Svp hafði nýtalað við Völlu Jónu og hún talið öll tormerki á því að treikvartettinn gæti sungið fyrir fjölda manna án rækilegrar æfingar. Kvartettinn gengur því úr skaptinu en verður í þess stað settur til forsöngs í Lóni 15. júní. Í stað kvartettsins kom fram hugmynd um að 10-15 manna lið karla og kvenna færi á svið og allir hinir fram á gólfið og sungin verði 2 lög, Burtu með sút og Það var í Vaglaskóg, fáir aðrir en við kunna það fyrra og tæplega nokkrir aðrir það síðara. Carlsbergsöngurinn verður svo aukalag þegar hópurinn verður klappaður upp.
Aðrar tillögur um skemmtiatriði frá okkur eru vel þegnar. Munið bara: Þetta á að vera skemmtiatriði.
Rætt var um miðapantanir fyrir 16. júní, en Gunnar upplýsti að hann gæti hugsanlega fengið útprentað hverjir úr hópnum væru búnir að panta miða. Fram hefur komið í tilkynningu frá 25 ára stúdentum að við eigum þátttökumet. Meiningin er samt að fá listann til að geta gert þeim aðvart sem hafa ekki pantað að gera það um leið og farið verður að reka á eftir þeim sem hafa ekki enn greitt inn á bankareikninginn. Þeir eru ekki mjög margir en farið verður að ýta á þá næstu daga.
Rætt var um Plan B og C ef veður verður leiðinlegt og ekki hægt að fara að Hraunsvatni eða í Innbæjargöngu. Nokkrar hugmyndir eru til, m.a. Eyjafjarðarhringur, eins og áður hefur komið fram, og Kjarnaskógur/Naustaborgir. Engin ástæða er til að hafa áhyggjur af þessu fyrr en Mangi gefur tilefni til.
Minnst var á Innbæjargöngu og nauðsyn þess að útvega leiðsögumönnum gjallarhorn til að heyrnardaufir þátttakendur fái numið eitthvað af þeirra vísindum. Edda gengur í málið.
Stóra söngskrármálið var næst á dagskrá og ákveðið að Gunnar F. ljósriti sönghefti en svp geri forsíðu. Annað söngblað verður haft í rútum og ferðum, þar sem eru textar laga sem Skarpó og Skúli hafa búið sig undir að spila á nikkur sínar en þeir verða enn fremur nýttir við forndansa í Lóni. Jóhanna lagði til að textar yrðu prentaðir á blindraletri vegna síaukinnar sjóndepru gamla fólksins. (Það er með undrum hversu sumum þykir mikil þörf á hjálpargögnum fyrir þennan unga hóp. Innskot fundarritara). Ekki var samt gerð krafa um göngugrindur.
Rætt var um stóra Bollumálið. Frestað var ákvörðunum um innkaup á drykkjum í bollu Eddu. Fram kom að mögulegt væri að hafa bollu Eddu í Lóni eða í Oddfellowhúsinu en ef skaðræðisblíða verður þennan dag heldur Edda enn í þá von að geta boðið þessum 150 hræðum í garðinn sinn. Hvað sem verður hefur Björn Jósef samið við SBA um að ferja fólkið frá bollustað að Höll.
Í boðum frá Anítu kom fram að Egill Eðvarðsson, sem er að fara í sumarfrí, muni útbúa 75 diska með kvikmyndinni af okkur og senda til Bjönda og Jóhönnu.
Lón. Fjallað var um fyrirkomulagið. Stungið var upp á því að fá veislustjóra úr MA-bekknum að Finnboga forfölluðum en trekvartett Völlu Jónu, herra Jóns og Þórhalls hefði forsöng ásamt Sigurði Helga píanóleikara. Talsvert var rætt um það hvort rétt væri eða nauðsynlegt að hafa einhverja sérstaka skemmtidagskrá. Voru ekki allir á einu máli um það en lagt var til að þeir sem hefðu hugmyndir um skemmtiefni sendu þær til Gunnars Frímannssonar. Annars verða myndir til sýnis í hliðarsal í Lóni og dansa má við harmónikkuleik þegar borð hafa verið tekin upp.
Bítl mun ef til vill þurfa. Það fer eftir stemmingu og fleira. Hvernig sem það fer var ákveðið að fólk reyndi að smala saman nokkrum diskum með gömlu og góðu söng- eða dansvænu efni, sem bregða mætti undir geislann ef kæmi átakanleg þögn.
Þá var tekið fyrir Stóra ávarpsmálið. Á fyrsta fundi í haust var lagt til að Stefán Vilhjálmsson afhenti skólanum gjöf okkar, mynd af Friðriki Þorvaldssyni, sem er afar góð að dómi allra sem séð hafa. Fleiri hugmyndum um fulltrúa bekkjarins við skólaslit var ýtt úr vör en hefur ekki verið fylgt eftir. Það var því ákveðið að Stefán taki þetta að sér, flytji örstutt ávarp um okkur og gjöfina og kalli Þórgunni Ingimundardóttur upp á svið þar sem hún afhjúpar myndina, sem verður síðan til sýnis í MA í Opnu húsi síðdegis.
Nú fer að líða að því að hinir miklu dagar renni upp, rétt rúm vika til stefnu. Allir sem eiga eftir að gera skil á greiðslum vegna hátíðarinnar og þeir sem eiga eftir að panta sér miða á hátíðina 16. júní í Höllinni eru hvattir til að gera það ekki seinna en strax.
Boðað var til næsta fundar á miðvikudagskvöld klukkan 20.00.
Fleira var ekki rætt en fundi slitið klukkan rúmlega 22. Ég man ekki betur.
svp