Nýtt ár
Komiði sæl og gleðilegt ár.
Það urðu aldeilis alvarlegar afleiðingar hátíðarhalda okkar í sumar. Sumir æddu rakleitt í sjávarháska í Færeyjum og svo hrundi spilaborgin. Þar á ofan var þessum ágæta vef okkar lokað. Það var að kenna smámisskilningi hjá mér og því að ég varð of seinn til að borga árgjald fyrir vefhýsinguna í Bandaríkjunum. Þegar ég var búinn að borga hélt ég að öllu yrði kippt í lag, en það gerðist ekki fyrr en núna að ég kvartaði við kerfisveituna.
Það væri held ég synd að týna þessum vef, eins mikið efni og komið er á hann, og ég vona að við varðveitum hann með einhverju móti. Það væri líka afar gott ef fólk gerði vart við sig af og til og setti inn eitthvert efni. Vefur er ekki eins og bók sem ekkert bætist við, hann þarf að vera virkur og lifandi. Takið endilega þátt í því ef ykkur finnst á annað borð ástæða til að halda þessu í loftinu.
Vona svo að árið nýja verði okkur til að gera eins gott og okkur er unnt. Fáeinir eiga til dæmis enn eftir að verða sextugir. Það var frábær skemmtun.
svp
You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.
febrúar 11th, 2009 at 5:02 eh.
Það yrði slæmt fyrir þjóðina ef þessi ágæti vefur týndist með öllu.
Jú, það hafa mikil tíðindi orðið í þjóðlífinu. Hinn harði kjarni MB-bekkjarins hittist að venju í desember sl. og gjörðust sumir þar ölir nokkuð. En MB-menn tapa nú aldrei glórunni alveg og að sjálfsögðu komust þeir að niðurstöðu um björgunaraðgerðir. Bekkurinn hefur á að skipa miklu mannvali sem treystir sér til að koma landinu á réttan kjöl á ný með því að mynda í hvelli untaþingsstjórn. Þórður Ólafsson er kjörinn forsætis- og fjármálaráðherra,Ingvar utanríkis- og viðskipta-, Sverrir Páll mennta- og félagsmála-. Það er svosem óþarfi að vera að negla þetta niður hér og nú, en mannskapurinn skiptir með sér verkum eins og best hentar hverju sinni. . Er þetta ekki málið? Hverjir eru aðrir í sjónmáli sem eru hæfari en við til að redda öllu helvítis klúðrinu?
febrúar 23rd, 2009 at 2:06 eh.
Spurt er!, nafni. Mér detta engir líklegri í hug!!