Myndirnar frá Palla

January 13th, 2009 svpall Flokkur: Almennt | Engin ummæli »

Palli Páls ljósmyndari nefndi það við mig í dag að hann ætti enn svolítið af myndum sem hann tók af okkur í sumar, bæði stóru hópmyndina sem var tekin úti og svo bekkjamyndirnar sem hann tók inni í Kvosinni á Hólum. Hann bað mig líka að segja ykkur frá því að hann er kominn með nýtt netfang, palli@palli.is og þið getið skrifað honum tölvupóst ef þið eigið eftir að panta myndir.

svp


Nýtt ár

January 12th, 2009 svpall Flokkur: Almennt | 2 ummæli »

Komiði sæl og gleðilegt ár.

Það urðu aldeilis alvarlegar afleiðingar hátíðarhalda okkar í sumar. Sumir æddu rakleitt í sjávarháska í Færeyjum og svo hrundi spilaborgin. Þar á ofan var þessum ágæta vef okkar lokað. Það var að kenna smámisskilningi hjá mér og því að ég varð of seinn til að borga árgjald fyrir vefhýsinguna í Bandaríkjunum. Þegar ég var búinn að borga hélt ég að öllu yrði kippt í lag, en það gerðist ekki fyrr en núna að ég kvartaði við kerfisveituna.

Það væri held ég synd að týna þessum vef, eins mikið efni og komið er á hann, og ég vona að við varðveitum hann með einhverju móti. Það væri líka afar gott ef fólk gerði vart við sig af og til og setti inn eitthvert efni. Vefur er ekki eins og bók sem ekkert bætist við, hann þarf að vera virkur og lifandi. Takið endilega þátt í því ef ykkur finnst á annað borð ástæða til að halda þessu í loftinu.

Vona svo að árið nýja verði okkur til að gera eins gott og okkur er unnt. Fáeinir eiga til dæmis enn eftir að verða sextugir. Það var frábær skemmtun.

svp


Hópmyndir

July 13th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | Engin ummæli »

Nú er Palli ljósmyndari búinn að senda tölvupóst um hópmyndir, sem hægt er að panta hjá honum. Einhver netföng virðast ekki enn vera rétt svo ekki hafa allir fengið Pálsbréf. Þeir geta haft samband við hann í síma 462 3464 eða skrifað honum tölvupóst á ljopal@simnet.is


Hægt að skrifa í gestabók

June 24th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | 2 ummæli »

Loksins erum við komin í gang með gestabók.
Opnið hana með því að smella á tengilinn Gestabók hér til vinstri eða á sams konar tengil eftir að hafa opnað Ómissandi. Eða bara smellt hér.
Vegna utanaðkomandi árása á vefi birtast gestabókaskrif og ummæli einungis þegar ritstjórar heimila birtingu. En látið ljós ykkar skína – og takk fyrir síðast öll saman. (svp)


Frá Þórgunni Ingimundardóttur

June 18th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | Engin ummæli »

Friðrik Þorvaldsson - málverk Kristins G. JóhannssonarKæru stúdentar M.A. 1968

Hjartans þakkir flyt ég ykkur frá mér og mínum, fyrir þann sóma, sem þið sýnduð minningu mannsins míns, Friðriks Þorvaldssonar kennara þann 17. júní síðast liðinn, er þið færðuð M.A. málverk af honum að gjöf.

Ég á engin orð til að þakka höfðingsskap ykkar og hlýju, þegar þið senduð mér að gjöf annað málverk af honum, sem beið mín hér heima, er ég kom frá skólaslitum.

Hafið hjartans þökk, heill og blessun fylgi ykkur öllum í bráð og lengd.

Þórgunnur Ingimundardóttir

Bréfið
Sjá myndir frá afhendingu 
Hin myndin
Ávarp Stefáns


Í lokin

June 17th, 2008 gunnarf Flokkur: Almennt | Engin ummæli »

Eftir jubelum nokkurra nátta
naumast er um það að þrátta
að við mættum flest
og fögnuðum best
úr MA68
       StV

Mörgum varð ekki svefnsamt þessar nætur og þegar komið var fram í vikuna dreymdi GFrí í vinnunni að til hans kæmi Jónas Hallgrímsson og kvæði vísu undir laginu “Hvað er svo glatt”. Vegna truflana á sambandinu leikur vafi á seinnipartinum sem getur hafa verið með a.m.k. tvennum hætti:

Undir skólans menntamerkikerti
hér mættust vinir góðan veðurdag
og sýndu að vilja í verki ekkert skerti
né vöxt á alla kanta og bræðralag.
Og fornar dáðir flestum tókst að rækja 
og fagrir draumar hafa margir ræst.
Já heill sé þeim sem hingað nenntu að sækja.
Ég held við gerum varla betur næst.

EÐA

Undir skólans menntamerkikerti
hér mættust vinir góðan veðurdag
og sýndu að vilja í verki ekkert skerti
né vöxt á alla kanta og bræðralag.
En fornar dáðir fæstum tókst að rækja 
þótt færi gleraugnalaus Birna í splitt.
Já heill sé þeim sem hingað nenntu að sækja.
Höldum saman norðanmenn! Ó sjitt.


Staðir og stundir

June 10th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | Engin ummæli »

Laugardagur 14. júní:
Hraunsvatnsganga klukkan 10.00 frá Heimavist.
Innbæjarganga klukkan 17.00 frá Samkomuhúsinu.

Sunnudagur 15. júní:
Heim að Hólum klukkan 10.00 frá Heimavist.
Bekkjarkvöld í Lóni klukkan 20.00.

Mánudagur 16. júní:
Karfa í Fjósinu klukkan 11.00.
Heimsókn í MA og myndataka kklukkan 13.00.
Bolla klukkan 16.30 í Oddfellowhúsinu.
MA-hátíðin í Höllinni. hús opnað klukkan 18.00. Hátíðin sett klukkan 19.00.

Þriðjudagur 17. júní:
Skólaslit í Höllinni klukkan 10.00.


Þú VERÐUR að lesa þetta

June 6th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | Engin ummæli »

Splunkunýtt og afar vel heppnað bréf undirbúningsnefndar er hér.
Ef þú átt eftir að borga - Drífðu í því. Upplýsingar ef þú smellir hér.
Ef þú átt eftir að panta miða í Höllina, Gerðu það strax. Smelltu hér.


Margborgar sig

May 24th, 2008 svpall Flokkur: Almennt | 4 ummæli »

Sjövetrungar
Þau byrjuðu í MA í fyrsta bekk, síðasti árgangurinn sem það gerði. Þau luku landsprófi úr miðskóladeild MA 1964: Edda, Dóttla og Steinunn í fremri röð og í þeirri aftari eru Stebbi, Andrea, Jói og Ingi. Var ekki Valdimar í þessu gengi líka?

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir: Borga!

Fimmta bréf undirbúningsnefndar er komið á vefinn. Gengið var frá áætlunum og sett verðskrá. Kostnaðartala hvers og eins er skráð á þátttakendalistann sem er hér.

Nú þarf að greiða tilsetta upphæð í síðasta lagi miðvikudaginn 4. júní á reikning, sem hér segir:
Reikningurinn er í banka nr. 302,
höfuðbók 13 og reikningsnúmerið er 701190.

Kennitala reikningseiganda er 210247-3869 og skráð nafn reikningseiganda MA68/Björn Jósef.


MA-hátíðin 16. júní 2008

April 21st, 2008 svpall Flokkur: Almennt | 4 ummæli »

MA-hátíðin verður í Íþróttahöllinni að kvöldi 16. júní. Miðasala á hátíðina fer þannig fram að fyrst eru miðar pantaðir á vef Bautans, smellið hér en síðan skal sækja miðana 15. eða 16. júní eins og þar stendur. Á Bautavefnum er líka matseðill hátíðarinnar. Bréf 25 ára stúdenta um hátíðina er hér undir tenglinum Ómissandi.